Vegna ábendinga hefur verið ákveðið að bjóða upp á svokallaðar tilboðsmyndir í barnadeildinni. Formið á þessu verður þannig til að byrja með að tilboðið verður í gangi í um viku á mánuði. Fyrsta vikan er komin í gang, þemað er "Gular myndir" (litur sumars og sólar) og hvert útlán kostar einungis 100 kr.
Vonandi mælist þetta vel fyrir og við hlökkum til að sjá ykkur nýta þetta!