Sýning með verkum úr þýskum myndasögum sem hafði verið sett upp í anddyri Amtsbókasafnsins verður örlítið lengur, og mun standa fram í miðjan apríl. Þarna má finna verk og sögur eftir Isabel Kreitz, Ulli Lust, Line Hoven og fleiri. Stórkostlega skemmtileg sýning sem kemur frá Goethe-Institut.