Þorratilboðið á þrotum - 3 fyrir 2 lýkur um helgina

Þorramatur

Nú um helgina lýkur þorratilboði Amtsbókasafnsins. Þorrinn hefur séð 3 fyrir 2 tilboð í fullum gangi, en þá má leigja sér efni að vild, fá þrjú en borga bara fyrir tvö. Hefur þetta verið mjög vinsælt í DVD-deildinni okkar.

Við hvetjum alla til að koma á safnið í dag eða á morgun, laugardag, og nýta sér tilboðið. Þeir sem taka myndir í dag eða á morgun skila myndunum ekki fyrr en á mánudaginn.

Þá minnum við á að nýtt verð á geisladiskum er aðeins 100 krónur (7 daga lán) og allar VHS myndir safnsins eru leigðar frítt.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan