Þorratilboð á Amtinu - 3 fyrir 2 á Þorranum

Dead Snow er enska heiti myndarinnarÍ tilefni Þorrans efnir Amtsbókasafnið til tilboðsdaga. Á þorranum verður hægt að fá DVD-myndir og geisladiska á 3 fyrir 2 tilboði. Það virkar þannig að þú leigir þrjár myndir eða þrjá geisladiska en borgar bara fyrir tvo. Tilboðið gildir líka fyrir 100 krónu tilboðið sem er enn í gangi. 3 fyrir 2 gildir því með öðrum tilboðum og setur Amtið þar með nýjar hæðir í tilboðsmál á Akureyri.

DVD-myndir kosta 400 krónur en geisladiskar 100 krónur.

Við minnum einnig á að ef DVD-myndir eru teknar á fimmtu- föstu- eða laugardegi þarf ekki að skila þeim fyrr en á mánudegi. Við bendum einnig á að dagssektir gilda fyrir öll lánuð eintök.       
                                                                                              Norski tryllirinn Død Snø.
Tilboðið gildir til 20. febrúar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan