Líkt og alltaf tekur Amtsbókasafnið ýmislegt fyrir og vekur sérstaka athygli á. Varðandi bækur eru sérstakar hillur fyrir nýjar bækur og fyrir vinsælar bækur. Einnig er þemahilla staðsett á vinstri hendi þegar gengið er að afgreiðslunni. Þar eru þemabækur mánaðarins en í desember eru þar Breskar stelpubækur.
Í DVD myndunum er þemað svo rómantískar og hugljúfar myndir.
Í barnadeildinni eru svo jólabækur á sérstökum stað.
Það eru starfsmenn safnsins sem velja þemu mánaðanna en varðandi DVD myndirnar hefur almenningi gefist kostur á að koma með hugmyndir í gegnum Facebook síðu Amtsbókasafnsins.