Kvikmyndadeild Amtsbókasafnsins á Akureyri vill gjarnan benda á að síðastliðna helgi fóru fram meiriháttar verðlaunaafhendingar á sviði kvikmynda. Önnur fór fram á laugardaginn og er kennd við hindber. Razzie-verðlaunin eru veitt til þeirra sem standa sig hvað verst í faginu, Óskarinn sem var afhentur á sunnudagskvöldið var fyrir bestu afrekin á síðasta ári.
Þær myndir sem tóku helstu verðlaunin á þessum hátíðum eru The Hurt Locker og Transformers: Revenge of the Fallen. Við leyfum lesendum síðunnar að giska á hvor myndin hlaut Óskarinn sem besta myndin og hvor hlaut hindberið fyrir verstu myndina (leikstjórar myndanna þóttu einnig bestir og verstir).
En vissulega eru þessar myndir nú þegar til á Amtsbókasafninu ... við erum jú með aragrúa af frábærum og umdeildum myndum hjá okkur. Athugið að þemað sem er í gangi eru einmitt Óskarsverðlaunamyndir og fást slíkar myndir hjá okkur á 100 kr. útlán.
Við hlökkum til að sjá ykkur rífast um þessar myndir og panta þær upp til agna. Brekkugata 17 bíður ykkar ávallt!