Sýningin um skátahöfðingjann Tryggva Þorsteinsson verður brátt tekin niður. Sýningin mun standa út vikuna.
Hann var félagsforingi Skátafélags Akureyrar í 28 ár og orti meðal annars á annað hundrað skátatexta. Hann starfaði lengst af við Barnaskóla Akureyrar, síðasta áratuginn sem skólastjóri.
Þá var hann áhugamaður um skógrækt, útivistarmaður og íþróttaunnandi.
Við hvetjum alla til að kíkja á þessa fróðlegu og skemmtilegu sýningu áður en henni lýkur.