Sumarlegur sumarlestur

Sumarlegur sumarlestur :-)
Sumarlegur sumarlestur :-)

Sumarlesturinn hefur gengið eins og í sögu og fjöldi ánægðra barna hefur lokið gefandi námskeiði hjá okkur.

Börnin fara um allan bæ og fræðast um sögu bæjarins, húsin og fólkið. Þau hafa heimsótt skáldahúsin, samkomuhúsið, listagilið og fleiri skemmtilega staði.

Við erum einstaklega ánægð með þessi börn sem koma til okkar á námskeið – Þau lesa, læra og leika sér og eru til fyrirmyndar í alla staði.

Skemmtilegur sumarlestur

Leiðbeinendur eru Herdís Anna Friðfinnsdóttir og Ragna Gestsdóttir – ásamt unglingum í sumarstarfi, þeim Halldóri H. Stefánssyni, Margréti S. Benediktsdóttur og Hafdísi B. Þórðardóttur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan