Stríðsbækur í Hofi

Stríð...
Stríð...

Amtsbókasafnið og Menningarhúsið Hof vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt.  Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.

BÓKAHILLAN
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema.

100 STRÍÐSBÆKUR

Í september er þemað; Hernaðarástand…

 Hernám, fangabúðir, flótti og andspyrna

Hernaðarástand og stríðsátök hafa óhjákvæmilega í för með sér hörmungar og mannfall. En sem betur fer verða líka til andspyrnuhreyfingar og gott fólk leggur líf sitt að veði til þess að hjálpa meðbræðrum sínum.

Hér er úrval bóka sem á einn eða annan hátt tengjast heimstyrjöldinni síðari og gefa einhverja hugmynd um það sem fólk upplifir í skugga hernaðar. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan