Spennandi upplestur á mánudaginn - L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra

L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra

Mánudaginn 13. desember les Eyrún Ósk Jónsdóttir upp úr nýrri bók sinni, L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra. Þetta er skemmtileg barna- og unglingabók sem er hlaðin spennu, húmor og bráðskemmtilegum persónum.

Upplesturinn hefst klukkan 17.

"Lára Sjöfn hlakkar ekki til sumarleyfisins, ekki eftir það sem gerðist í vetur. Helst langar hana til að loka sig af og gera sem minnst. Sú áætlun á þó eftir að breytast þegar Lára flækist óvænt inn í dularfulla og spennandi atburðarás.

Allt breytist þegar Lára kynnist fyrir tilviljun hópi af stórskemmtilegu fólki sem býr í gömlu húsi við sjóinn. Þegar Lára kemst að því að þessir nýju vinir hennar eiga í höggi við illa gefna smákrimma og slóttugan stjórnmálamann sem svífst einskis til að ná sínu fram opnast henni nýr heimur, fullur af ævintýrum.

Lára ákveður að taka málin í sínar hendur og fyrr en varir þarf hún að setja sig í spor spæjara og leikara, brjóta lög og reglur og beita ráðsnilld til þess að bjarga fjölskyldu sinni og vinum frá illri ráðagerð óvinarins."

Allir eru hvattir til að mæta og heyra skemmtilegan upplestur úr spennandi bók!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan