Allar bækur sem komu út fyrir jólin eru ekki lengur í skammtímaláni. Lánstími á þeim er nú 30 dagar. Margar þeirra staldra nú örlítið lengur við í hillunum hjá okkur og því auknar líkur á að næla sér í nýlega bók.
En jólabækurnar eru ekki einu nýju bækurnar og alltaf bætast spennandi tiltlar í safnið. Allar nýjar bækur fara beint í útlán og er ávallt stillt upp í hillurnar næst afgreiðslunni þannig að auðvelt er að fylgjast með!
Athugið að einnig er búið að setja upp hillu fyrir nýju hljóðbækurnar á austurvegginn. Fram til þessa hefur nýjum hljóðbókum verið stillt upp með öðru nýmeti en núna hafa þær fengið sína eigin hillu :-)