Síðustu dagar þorratilboðsins - það vilja allir fá meira fyrir minna, er það ekki?

Þegar þetta er skrifað er nýhafinn öskudagur. Það þýðir að einungis fjórir dagar eru eftir af þorratilboðinu svokallaða - þ.e. "3 fyrir 2"-tilboðið (borgaðu fyrir tvo hluti sem kosta 350 kr. í útlán, en fáðu þrjá). Nýjar kvikmyndir bætast nær daglega í safnið, og hægt er að fá lista sendan til sín yfir mynddiskaeign Amtsbókasafnsins.

Gera má ráð fyrir því að afskriftir á myndböndum haldi áfram og stutt sé í það að þetta efni mögulega hverfi alveg úr hillum fyrstu hæðar. Afskrifuð myndbönd eru til sölu hjá okkur á 150 kr. stykkið og ef þú kaupir 10 í einu, þá færðu þau á 1000 kr.

Meðal nýrra mynda hjá okkur eru myndir frá Íran, Grikklandi, Þýskalandi, Spáni, Noregi og fleiri löndum. Flestar eru þær nokkurra ára gamlar og fara því ekki beint í "nýjar myndir" hilluna, heldur í viðkomandi tungumáls-hillur.

Einnig er gott að taka það fram að þótt myndum fjölgi sem ekki hafi íslenskan texta, þá hefur myndum með íslenskum texta fjölgað líka.

Amtsbókasafnið á Akureyri er ákaflega stolt af safnkosti kvikmyndadeildarinnar og þeirri fjölbreytni sem þar ríkir (þótt enskar myndir séu í yfirgnæfandi meirihluta). Safngestir hafa líka verið duglegir við að benda á efni sem ætti að kaupa, og ítrekum við það hér með að halda þeim ábendingum áfram.

Sjáumst hress á Amtsbókasafninu, þar sem nýjar bækur, tónlist, kvikmyndir og tímarit líta dagsins ljós á hverjum degi!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan