Fimmtudaginn 12. maí var síðasta sögustundin hjá okkur fyrir sumarfrí. Þetta var einnig síðasta sögustundin sem Herdís Anna, barnabókavörður sá um hérna hjá okkur en hún er því miður að hætta hjá okkur.
Það var margt um manninn í og nokkrir dyggir vinir sögustundarinnar mættu með gjafir og góðar óskir til Herdísar en hún hefur haldið uppi öflugu barnastarfi á Amtsbókasafninu undanfarin fjögur ár.
Við kveðjum Herdísi með trega í hjarta en fögnum um leið nýjum barnabókaverði sem hefur störf hjá okkur í september.