(eftirfarandi texti er tekinn í heild sinni af viðburðadagatalinu á www.visitakureyri.is)
Páll Skúlason reið á vaðið í síðustu viku í fyrirlestraröð um "Hrunið og heimspekina" en nú mun Salvör Nordal ræða um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja út frá skýrslu vinnuhóps um siðferði og starfshætti sem vann með rannsóknarnefnd Alþingis.
Fyrirlesturinn fer fram fimmtudaginn 15. apríl kl. 17.00 á Amtsbókasafninu.
Næstu lestrar:
22. apríl - Magnús Baldursson: Hvað er vald?*
29. apríl - Guðmundur Heiðar Frímannsson: Er samfélagssáttmálinn brostinn?
7. maí - Ágúst Þór Árnason: Hvaða lýðveldi?
* Fyrirlestur Magnúsar fer fram í Eymundsson, Hafnarstræti.
Félag áhugafólks um heimspeki
Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri
Amtsbókasafnið á Akureyri