Rekstraraðili óskast í kaffiteríu safnsins

Amtsbókasafnið á Akureyri óskar eftir rekstraraðila í kaffiteríu safnsins

Þjónusta og veitingasala við gesti og starfsmenn bókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins
eru meginmarkmið rekstrarins.

Nýr rekstraraðili myndi verða í samstarfi við safnið með ýmsar uppákomur og viðburði sem tengjast menningu og listum, ekki síst þar sem fyrirlestrarsalur og netaðstaða bókasafnsins er í sama rými og veitingaaðstaðan.

Umsækjendur sendi stutta lýsingu á því hvernig þeir hugsa sér reksturinn, sem og stefnu og tegund veitinga á holmkell@akureyri.is

Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2012 og æskilegt er að nýr aðili geti hað störf sem fyrst eftir það.

Frekari upplýsingar veitir Hólmkell Hreinsson í síma 460 1253 og 862 6882

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan