Óskarsleikur Amtsbókasafnsins - Kvikmyndagúrúar sameinist!

Óskarinn

Í tilefni af Óskarsverðlaunanna ætlar Amtsbókasafnið að missa sig í Óskar. Við byrjum á leik á Fésbókarsíðu safnsins sem virkar svona:

1. Farðu á Facebook og Líkaðu við Amtsbókasafnið (ef þú hefur ekki þegar gert það).
2. Skrifaðu á vegg síðunnar 10 nöfn á kvikmyndum, 5 leikstjórum, 5 leikurum og 5 leikkonum sem þú heldur að verði tilnefnd til aðalverðlauna hátíðarinnar.
3. Þú færð eitt stig fyrir hvert rétt svar (mest 25 stig) og sá stigahæsti hlýtur verðlaun frá Amtsbókasafninu, 20 fríar DVD-myndir á útleigu. Ekki amalegt það.

Tilnefningarnar verða kunngerðar 25. janúar og á hádegi þann dag lýkur leiknum. Daginn eftir verður sigurvegarinn svo krýndur.

Síðar í janúar verðum við með meiri Óskarslæti, fylgstu með!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan