Akureyrarbær hefur ákveðið að skipta um vefumsjónarkerfi fyrir heimasíðu sína og við á Amtsbókasafninu fylgjum auðvitað með. Þetta þýðir að engin hreyfing verður á þessari síðu næstu vikuna eða svo.
Við vonumst auðvitað eftir því að ykkur líki við nýtt útlit, en því svipar mjög til þess sem við höfum núna.
Við biðjumst afsökunar á hægum uppfærslum á nýjum fréttum en væntum þess að með nýju kerfi muni uppfærslur verða tíðari og þessi vefur okkar verður vonandi ykkur að skapi.
Endilega sendið til okkur ábendingar í netfangið thorsteinn@akureyri.is - og fylgist áfram vel með Facebook síðunni okkar: www.facebook.com/amtsbok