Það er ekki að spyrja að tilboðunum á Amtinu. Í Barnadeildinni er nú tilboð á Disney myndum og kostar hver mynd aðeins 100 krónur. Mikið úrval af myndum er í boði, meðal annars um Bangsímon, Hringjarann frá Notre Dame, Mjallhvít og ýmislegt fleira.
Þeir sem leigja DVD-mynd í dag, föstudag, skila myndunum heldur ekki fyrr en á mánudag!
Í almennu DVD-deildinni var ákveðið að framlengja tilboð á myndum með mannanöfnum í þar sem fjöldi myndanna var svo mikill.