Nýtt þema í tilboðsmyndunum - og \'undirþema\' með fríum útlánum!

Nýtt þema í tilboðsmyndunum fyrir nóvember er "IMDb-Top100". Þær myndir má fá lánaðar fyrir einungis 100 kr. Silja Christensen stakk upp á þemanu í gegnum Facebook síðu Amtsbókasafnsins og hefur hlotið smá verðlaun fyrir það.

Nýtt í mynddiskum í nóvember er "undirþemað" Leiðinlegar myndir en það eru leiknar myndir sem hafa ekki enn lánast út hjá okkur. Þessar myndir eru til útláns fyrir 0 kr.!! Já, frí útlán! En um leið og einhver hefur leigt þannig mynd, þá hættir hún að vera "leiðinleg". Þessar myndir má finna í neðstu hillunni í aðalrekkanum gegnt tilboðsmyndunum.

Viljum samt taka það fram að sektir á þessum myndum eru hefðbundnar, þ.e. að fyrir hvern dag sem farið er fram yfir frestinn rukkast 170 kr. pr. eintak.

Komið endilega og fáið ykkur tilboðsmyndir á 100 kr. (myndir sem netverjar hafa valið sem bestu myndir allra tíma!) eða fáið ykkur leiðinlegar myndir á 0 kr. - Nóvember er bara flottur mánuður á Amtsbókasafninu!!!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan