Nýtt óskarsþema á safninu - Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna tilkynntar

Natalie Portman

Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna árið 2011 voru kunngjörðar í dag. Tíu myndir voru tilnefndar sem besta myndin, þær má sjá hér fyrir neðan, en heildarlista yfir tilnefningar má sjá á Oscars.com.

Í tilefni þessa byrjar nýtt tilboð á bókasafninu í dag. Allar myndir sem einstaklingar sem eru tilnefndir til verðlauna í ár, eru á tilboði. Það þýðir að allar myndir sem við eigum með Natalie Portman (á mynd), til dæmis V for Vendetta, eru á tilboði, af því hún er tilnefnd til verðlauna í ár.

Tilboðsmyndir kosta aðeins 100 krónur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan