Á Amtsbókasafninu má ýmislegt finna. Meðal annars litla búð þar sem finna má stórskemmtilegar vörur fyrir yngri kynslóðina. Hillu með vörunum má finna við hlið afgreiðslunnar. Þar eru meðal annars borðáhöld, púsl, föt, spil, bækur og bangsar. Safnið hefur fengið mikið af nýjum vörum undanfarið.
Hér er brot af safninu:
Púsl af ýmsum toga
Diskar og hnífapör frá Múmíndal. Lyklakippur frá Múmíndal.
Stílabækur frá Múmíndal. Fullkomnar fyrir bæjarstjóraefni!
Fleiri myndir má sjá hér, á Flickr síðu Amtsbókasafnsins.