Nýjar sjálfsafgreiðsluvélar

LM3200 komin í gagnið!
LM3200 komin í gagnið!

Þann 16. ágúst síðastliðinn tókum við í gagnið nýjar og nútímalegar sjálfsafgreiðsluvélar. Þær eru af gerðinni LM3200 og búnar notendavænum Library Mate hugbúnaði.

Gömlu vélarnar höfðu þjónað okkur vel í 10 ár og því kominn tími á ný og betri tæki.

gamla vélin

Fyrir ykkur, viðskiptavinir góðir, ætti breytingin ekki að hafa mikil áhrif nema til hins betra og útlán ættu að verða enn einfaldari og þægilegri. 

Helstu breytingar eru að letur er stærra á skjánum og vélarnar eru hraðari.  Núna er hægt að fá kvittun yfir útlán og stöðu í tölvupósti og einnig hægt að sleppa því að prenta út kvittun bæði í útlánum og skilum.

ný vél

Ef eitthvað er óljóst hvetjum við ykkur til að bera upp spurningar og leita aðstoðar hjá okkur. Okkur þykir fátt skemmtilegra en að rétta fram hjálparhönd :-)

tími til að tengja

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan