Nýjar kvikmyndir í október

Kæru kvikmyndaelskandi safngestir! Mynddiskadeildin okkar er sú eina sem býður upp á útlán á mynddiskum hér í bænum. Við erum líka best og með mesta úrvalið ... hlutlaust mat!

Þó svo að miðillinn sé hverfandi, þá er þó nokkuð mikið um fólk sem finnst gaman að koma og velja sér efni til að setja í tækin sín heima. Einnig eru börn stundum með tæki inni hjá sér en ekki streymisveitur, þannig að Amtsbókasafnið og kvikmyndadeildin stórkostlega er málið!

Þessi mynd er bara lítið brot af því sem hægt er að fá ... þetta eru nýjustu myndirnar hjá okkur. Kíkið við og svo má leita í eldra efninu líka!

Að horfa á kvikmynd er góð skemmtun!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan