Á bókasafninu er alltaf tilboð á DVD-myndum. Nú hefur verið skipt um tilboð í báðum deildum.
Þemað núna eru myndir með mannanöfnum. Þær myndir sem heita eftir fólki eða persónum eru því á tilboði.
Dæmi um þetta eru Mr. Bean, Indiana Jones og Ace Ventura og í barnadeildinni Nonni og Manni, Skógardýrið Húgó og Algjör Sveppi.
Myndirnar kosta aðeins 100 krónur og eru sem fyrr leigðar í tvo sólarhringa.