Panama.is er heitið á nýrri bókabúð á Netinu. Margir kjósa að kaupa bækur á netinu enda almennt ódýrara en að kaupa þær í bókabúðum. Að vafra um á netinu toppar þó aldrei að rölta um góða bókabúð og spóka sig.
En verðið ræður hjá mörgum og eftir stutta netkönnun virðist vera sem Panama sé með mjög gott verð á bókum hjá sér.
Þá býður Panama upp á frían sendingarkostnað um allt land.
Sjá: Panama.is
Við bjóðum Panama velkomið í bókaflóruna!