Notar þú tölvupóst reglulega?

Eins og flestir safngestir hafa vonandi tekið eftir síðustu ár, þá höfum við á Amtsbókasafninu boðið upp á þá þjónustu að senda tilkynningar á tölvupóstsformi. Þetta geta verið rukkanir, tilkynningar um að pantanir séu komnar í hús og nú síðast áminning um það að skiladagur sé að nálgast.

Við viljum brýna fyrir ykkur að gefa okkur upp netföng sem þið skoðið reglulega. Ef þið breytið netföngunum þá megið þið endilega láta okkur vita.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan