Nordiske filmer - spennumyndir frá Norðurlöndunum eru á tilboði á Amtinu!

Nýtt þema er komið í tilboðsmyndirnar í kvikmyndadeildinni: spennumyndir frá Norðurlöndunum. Þær eru margar hverjar ekki með íslenskum texta og eru bannaðar 15-16 ára og yngri.

Myndir sem falla undir þennan flokk eru til dæmis hinar sívinsælu sænsku myndir um Wallander, dönsku Pusher myndirnar og vampírumyndin Låt den rätte komma in.

100 kr. útlán fyrir snilldarmyndir frá Norðurlöndunum - gerist varla mikið betra. Sjáumst hress á Amtsbókasafninu!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan