Það eru ekki bara nýjar myndir sem koma inn í kvikmyndadeildina, heldur líka "nýjar gamlar" myndir - þ.e. myndir sem við höfum kannski átt á VHS en kaupum DVD útgáfuna. Einnig má finna þarna myndir sem teljast unglingamyndir og svo myndir sem safngestir hafa óskað eftir því að verði keyptar. Meðal þeirra sem hafa komið nýjar í vikunni eru:
Mean Girls - skemmtileg unglingamynd með Lindsay Lohan í aðalhlutverki
The Rock - hörkuspennandi mynd með nöglunum Sean Connery og Nicolas Cage
Old School - gamanmynd um menn sem vilja upplifa háskólaárin sín aftur
Memento - klassísk mynd eftir snillinginn Christopher Nolan
Ever after - Öskubuskumynd með Drew Barrymore og Anjelica Huston
Sleepover - unglingamynd um hressar stelpur