Amtsbókasafnið þarf að skera niður um 8% af rekstri sínum á árinu 2011 og ljóst er að þjónusta safnsins við viðskiptavini sína mun skerðast vegna niðurskurðarins. Ekki verður ráðið í störf tveggja starfsmanna sem munu fara í fæðingarorlof á árinu og engin sumarafleysing verður á safninu en enginn starfsmaður missir vinnuna. Þó verða færri starfsmenn til staðar vegna leyfa og fría. Til að mynda verða millisafnalán ekki afgreidd næsta sumar. Einnig mun gjaldskrá safnsins hækka eins og kynnt er hér fyrir neðan.
Óhjákvæmilega verður þjónustan að einhverju leyti minni en að sjálfsögðu mun ötult starfsfólk safnsins kappkosta að þjónusta alla eftir bestu getu.
Auk þessa verður leitað leiða til að spara með ýmsu móti, til að mynda með því að spara rafmagn, lækka prentkostnað og ýmislegt fleira.
Gjaldskrárhækkanir taka gildi 15. janúar 2011. Þó mun ekki allt hækka, til að mynda lækkar verð á útleigu á geisladiskum úr 350 krónum í 100 krónur og VHS-myndbönd verða lánuð ókeypis. Það sem hækkar er meðal annars leiga á DVD-myndum, lánþegaskírteini og gjöld fyrir sektir.
Hér fyrir neðan má sjá gjaldskrána, breytingar eru innan sviga.
Gjaldskrá (15. janúar 2011)Útlán:
Mynddiskar (DVD) 400 kr. (var 350 kr.)
Lánstími á mynddiskum er 2 dagar - Fæðsluefni er lánað í 7 daga
Tónlist og margmiðlunardiskar 100 kr. (var 350 kr.)
Lánstími á diskum með tónlist er 7 dagar
Lánstími á margmiðlunardiskum er 14 dagar
Myndbönd (VHS) Ókeypis útlán (var 350 kr.)
Lánstími á myndböndum er 2 dagar - Fræðsluefni er lánað í 7 daga
Annað:
Skírteini 2.000 kr.* (var 1500)
*Fyrsta skírteinið er ókeypis. Lánþegar sem ekki eiga lögheimili í Akureyrarkaupstað greiða 2.000 kr. árgjald.
Nýtt skírteini fyrir glatað kostar 1.000 krónur.
Afnot af tölvum safnsins (1 klst.) 300 kr.*
*Þeir sem framvísa bókasafnsskírteini sínu þurfa ekki að greiða fyrir 1 klst. á dag.
Afnot að þráðlausu neti safnsins Ókeypis
Eyrnatappar 70 kr. (var 40 kr.)
Fax 200 kr. (var 150 kr.)
Frátektir 250 kr. (var 200 kr.)
Geisladiskur (skrifanlegur) 300 kr. (var 200 kr.)
Hlutverkaspil 100 kr.
Ljósritun (A4) 35 kr./20 kr. (var 20 kr./15 kr.)
Ljósritun (A3) 50 kr./25 kr. (var 40 kr./20 kr.)
Ljósritun úr innbundnum dagblöðum 400 kr.
Millisafnalán - innanlands 500 kr. fyrir eintak
Millisafnalán - frá útlöndum 1.000 kr. fyrir eintak
Símtal 30 kr.
Skönnun 300 kr.
Útprentun 35 kr. (A4) (var 20 kr.)
Útprentun í lit 100 kr.
Sektir:
Bækur, geisladiskar, hljóðbækur, margmiðlunardiskar,
myndbönd og tímarit:
Dagssekt á eintak 20 krónur (var 15 kr.)
Mynddiskar (DVD) (2ja daga lán):
Dagssekt á eintak 200 krónur (var 170 kr.)
Mynddiskar (DVD) (7 daga lán):
Dagssekt á eintak 100 kr.