Nældu þér í DVD framyfir páska í dag

DVD

Ef þú leigir DVD-mynd á bókasafninu í dag þarftu ekki að skila henni fyrr en eftir páska, þriðjudaginn 26. apríl. Þú hefur myndina því í heila viku. Sem fyrr eru tilboð í almennu deildinni og barnadeildinni á myndum, margar myndir kosta aðeins 100 krónur.

Safnið var lokað í morgun vegna fræðslumorguns starfsmanna en er nú opið og allir í sólskinsskapi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan