Það margborgar sig að skrá netfangið sitt hjá Amtsbókasafninu. Við sendum engar óþarfa tilkynningar, aðeins gagnlegar upplýsingar! Þetta á til dæmis við um hvenær þú átt að skila þeim gögnum sem þú ert með í láni.
Ef þú ert með netfang færðu sendan tölvupóst nokkrum dögum áður en þú átt að skila. Þetta á þó aðeins við gögn sem eru á 10 daga láni, og virkar því til dæmis ekki fyrir DVD-myndir eða geisladiska. Það á að koma í veg fyrir að þú fáir sekt.
Þá sendum við einnig tölvupóst ef gögn eru komin í vanskil og þannig ætti sektin ekki að hrannast upp.
Ef þú pantar bók færðu einnig sendan tölvupóst þegar það sem þú pantar kemur á safnið.
Til að skrá tölvupóst á safninu er best að senda okkur línu á bokasafn@akureyri.is (þá er gott að hafa kennitölu með) eða hringja í okkur í síma 460-1250. Svo geturðu skráð netfangið næst þegar þú kemur á safnið.