Amtsbókasafnið hefur keypt aðgang að heimasíðunni Hlusta.is. Með því hefur hljóðbókakostur safnsins aukist um ríflega tíu prósent á einu bretti.
Safnið hefur þegar sótt tæplega 50 bækur á Hlusta.is og brennt á diska. Fleiri munu bætast við fljótlega. Diskarnir eru auðþekkjanlegir á hvítu hulstri, eins og þessir á myndinni.
Hljóðbækur eru lánaðar í 30 daga og eru að sjálfsögðu gjaldfrjálsar.
Mikil umræða hefur verið um hljóðbækur undanfarið og vonar safnið að það nái að uppfylla kröfur almennings, að einhverju leiti, með þessum hætti.