Á bókasafninu hefur nú verið opnaður markaður þar sem gömul tímarit og bækur eru til sölu. Um er að ræða efni sem fellur frá þegar bókakosturinn er endurnýjaður.
Þrjú verð eru í gangi á markaðnum, 20 krónur, 50 krónur og 100 krónur og því er auðvelt að gera góð kaup.
Markaðurinn verður opinn í rúma viku og er í anddyri safnsins.