Vegna innleiðingar á nýju millisafnalánskerfi verður ekki hægt að panta bækur á millisafnaláni dagana 16. september til 4. október. Nýja kerfið mun auðvelda til muna að fá bækur lánaðar og verður það kynnt í byrjun október.
Þjónustan verður skert á tímabilinu, en hægt er að senda áríðandi beiðnir til okkar á netfangið millisafnalan@akmennt.is. Reynt verður að leysa úr þeim eins fljótt og tími vinnst til.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum og töfum sem þetta hefur í för með sér.