Ljóðaganga
Í afmælisgöngunni fimmtudaginn 30. ágúst verður gengið um slóðir Akureyrarskáldanna.
Akureyri hefur stundum verið nefndur “Skáldabærinn" vegna fjölda eldri og yngri skálda sem alið hafa manninn hér í bæ. Í tilefni af
afmæli Akureyrarbæjar verður farið í ljóðagöngu um brekkuna og heilsað upp á skáldin sem þar bjuggu og lesið úr
ljóðum þeirra. Lagt verður af stað frá planinu sunnan við Amtsbókasafnið kl. 20 og göngunni lýkur við Sigurhæðir.
Erlingur Sigurðarson fv. umsjónarmaður skáldahúsanna hefur skipulagt gönguna og nýtur hann fylgdar Hólmkels Hreinssonar og Hólmfríðar
Andersdóttur starfsmanna Amtsbókasafnsins.
Afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri bjóða upp á göngur öll fimmtudagskvöld í sumar.
Fylgist með dagskrá afmælisársins á www.visitakureyri.is, www.facebook.com/akureyri150 og á www.akmus.is