Laugardaginn 8. maí opnar sýning á verkum nemenda úr Fjölmennt. Þetta er ein af árlegum sýningum á Amtsbókasafninu og má segja að litadýrðin sé alltaf svo mikil og skemmtileg í maí á hverju ári.
Í ár er þemað "Hafið" og sjá má glæsileg málverk og listaverk úr röðum nemenda Fjölmenntar. Sýningin er liður undir Listum án landamæra og verður í anddyri Amtsbókasafnsins 8.-26. maí 2010.