Lestrarsalur, net og leitartölvur

Við höldum áfram að kynna ýmsar deildir og þjónustu sem boðið er upp á hér á Amtsbókasafninu. Í dag kíkjum við á lestrarsalinn, netþjónustu og leitartölvur.

Lestrarsalur:
Lestrarsalur safnsins er á 2. hæð og er hann opinn frá klukkan 8:15-19:00 alla virka daga og klukkan 11:00-16:00 á laugardögum (ekki er opið á laugardögum í sumar).

Á lestrarsal eru lesbásar og borð til afnota fyrir gesti og opinn aðgangur að þráðlausu neti. Gestum okkar býðst einnig aðgangur að vefbókasafninu Snöru sem er safn orðabóka og annarra uppflettirita. Slóðin er www.snara.is


Netið:
Gestum safnsins gefst kostur á ókeypis aðgangi að internetinu hvort heldur sem þeir vilja nota sínar eigin tölvur eða tölvur sem staðsettar eru á kaffihúsi á 1. hæð. Í tölvunum eru algengustu Office forritin, Word, Excel o.fl.

Leitartölvur:
Upplýsingar um safnkost eru aðgengilegar í gagnagrunni safnsins. Þar sést hvað er til, hvar það er staðsett og hvað er hægt að fá lánað.

Leitartölvur eru staðsettar á báðum hæðum safnsins og er starfsfólk reiðubúið að veita safngestum aðstoð við leit þegar þess gerist þörf.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan