Eftir stutt jólafrí byrjar upplesturinn í barnadeildinni á nýjan leik í dag, fimmtudaginn 6. janúar. Upplesturinn hefst klukkan 16.00 í barnadeildinni og eru allir meira en velkomnir með börn á hvaða aldri sem er.
Í janúar verður lesið upp úr nýjum barnabókum og er það von bókasafnsins að sem flestir láti sjá sig.