Lengur opið í nóvember og desember!

Bestu safngestir í heimi! Við endurtökum gleðifréttir síðustu tveggja ára og næstu sex vikurnar eða svo verður opið hjá okkur til 22:00 á þriðjudögum og fimmtudögum!! Húrra fyrir því!

Frá og með þriðjudeginum 5. nóvember verður afgreiðslutími Amtsbókasafnsins á þriðjudögum og fimmtudögum 8:15–22:00. Sjálfsafgreiðsla er eins og áður 8:15–10:00 og líka frá 19:00–22:00.

Tímabilið verður sem sagt (báðir dagar meðtaldir): 5. nóvember - 12. desember.

Sjáumst hress á Amtinu ... lengur!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan