Leitir.is

Leitir.is
Leitir.is

Gögn sem eru aðgengileg í leitir.is koma víða að.  Með leitir.is er notendum gert kleift að leita í fjölda gagnasafna frá einum stað. Má þar nefna Gegni, Bækur.is, Elib, Hirslu, Hvar.is, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Skemmuna og Tímarit.is.

Oftast hafa þó viðskiptavinir okkar áhuga á að vita hvort að við eigum tiltekna bók og vilja sjá strax hvort að hún sé aðgengileg.

Nú hefur litli leitarglugginn hér til hliðar á heimasíðunni, verið settur þannig upp að eingöngu er leitað í safnkosti Amtsbókasafnsins. Hægt er að slá inn t.d. bókartitil eða höfund og þá birtast niðurstöður yfir það sem til er hjá okkur - Lítið mál er síðan að víkka leitina og sjá hvað til er á öðrum stöðum á landinu.

Leitið og þér munuð finna!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan