Hvernig er stemmningin? Er stressið að fara með þig? Þreytan rosaleg? Eða líður þér bara kannski svo vel að þú vilt setjast í þægilegan stól og hafa það næs?
Þessir hægindastólar á 2. hæð hafa glatt og róað niður fólk af öllum stærðum og gerðum. Svo mikið að stundum heyrist eins og ein lítil hrota frá þeim. Ef fólki líður vel hjá okkur, þá erum við ánægð. Það getur nefnilega verið svo huggulegt að setjast þarna niður, mögulega með teppi yfir sér og lesa í bók. Ertu að læra og þarft smá hvíld? Þá er nú flott að geta staðið upp og sest í annan hvorn þessara stóla og fá sér 15 mínútna kríu.
Svo eru sófar hér á safninu, þægilegir stólar, borð og stólar með æðislegt útsýni ... bara um að gera:
láttu þér líða vel!