Kosningahelgi og 2 fyrir 1

2 fyrir 1 tilboðið er frábært! Kosningar hvað??!!
2 fyrir 1 tilboðið er frábært! Kosningar hvað??!!

Það er merkileg helgi framundan og engin leið að spá hvernig hún fer. Verður vitlaust veður á sunnudag eða mun norðlensk blíðan koma óvænt? Eitt er hins vegar alveg víst: 2 fyrir 1 tilboðið er í fullum gangi í dag og á morgun (eins og alla föstudaga og laugardaga). Þeir sem ekki vilja horfa á stórskemmtilegt og fræðandi kosningasjónvarp ættu endilega að líta við hjá okkur á Amtsbókasafninu og birgja sig upp fyrir helgina. Á fjórða þúsund kvikmyndir af öllum stærðum, tungumálum og gerðum! Buster Keaton og Harold Lloyd? Eigum þá auðvitað! Wayne's world og Austin Powers? Auðvitað til hjá okkur! Millennium þríleikurinn? Ef þú skyldir hafa misst af honum, þá er hann auðvitað til hjá okkur. Hungurleikarnir? Borat? Rocky? Transformers myndirnar? Pirates of the Caribbean myndirnar? Shirley Temple myndirnar? --- Hættu að spyrja og komdu bara til okkar!

Sjáumst hress á Amtinu eins og ávallt! Munið að kjósa rétt! Kjósið myndir frá Amtinu! - Góða helgi!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan