Konur um konur

Konur um konur frá konum til kvenna
Konur um konur frá konum til kvenna

Amtsbókasafnið og Hof í ritlistarsamstarfi

Amtsbókasafnið og Menningarhúsið Hof vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt.  Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.

BÓKAHILLAN
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema.

100 KVENNABÆKUR

Í mars er þemað; Konur…

 Konur um konur frá konum til kvenna

Allar eins ólíkar eins og þær eru margar – Fjölhæfar og fagrar fara þær um heiminn og láta til sín taka, hvort sem er á ritvellinum eða annarsstaðar.

Hér er úrval bóka sem konur hafa skrifað um konur og/eða fyrir konur. Umfjöllunarefnin eru af ýmsum toga en gefa smá hugmynd um úrval fræðibóka eftir konur sem nálgast má á Amtsbókasafninu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan