Árslokatölfræðin er alltaf áhugaverð og hún gefur okkur góða mynd af starfseminni. Árið 2011 var heildarfjöldi útlána hjá okkur 216,591. Flest eru þau til einstaklinga eða alls 209,426.
Það er greinilegt að það eru konurnar sem bera bók í bú, því 79% allra útlána fara á skírteini kvenna. Margir karlar eiga þó skírteini hjá okkur, en þeir eru 37% lánþega.
Kynjamunurinn er þó að eitthvað að lagast og við bindum vonir við unga fólkið, en nýir lánþegar árið 2011 voru 58% konur og 42% karlar.