Eitt af því sem við erum alltaf með á Amtsbókasafninu eru tilboðsmyndir. Þá er hægt að fá þær leigðar á 100 kr. hverja mynd. Útlánatími er sá sami og á öðrum myndum.
Þemað núna eru karlamyndir, og um að gera að mæta á svæðið og sjá hvort einhverjar myndir þar heilli.
Þorratilboð fer í gang föstudaginn 22. janúar nk. Þá mun vera hægt að leigja þrjár myndir á verði tveggja - svokallað 3 fyrir 2 tilboð. Við vorum með álíka tilboð fyrir um ári síðan og mæltist það vel fyrir. Tekið skal fram að ekki er hægt að leigja tvær tilboðsmyndir og fá svo eitthvað á 350 kr. frítt, heldur verður tilboðið að vera innan ramma hvers verðpakka. Dæmi:
Þrjár tilboðsmyndir á 100 kr. = 200 kr.
Þrjár kvikmyndir (VHS eða DVD) á 350 kr. = 700 kr.
Þrír geisladiskar (CD) á 350 kr. = 700 kr.
Tveir geisladiskar og einn mynddiskur (DVD) = 700 kr.
Í stuttu máli: þá verður hægt að leigja þrjá hluti sem kosta 350 kr. hver á verði tveggja!
Tilboðið hefst 22. janúar og stendur út þorrann!