Til þess að gera anddyrið jólalegt hefur Héraðsskjalasafnið sett upp sýningu á jólakortum í einkaeign frá u.þ.b. 1943-1997, og sýningu á jólaskrauti frá síðustu öld. Amtsbókasafnið hefur líka sett upp sína árlegu sýningu á jólasveinunum þrettán ásamt Grýlu, Leppalúða og jólakettinum sem Jólagarðurinn gaf safninu.