Hentugt að fá sér DVD um áramótin - Skiladagur 3. janúar og allt vaðandi í tilboðum

Það er hentugt að næla sér í DVD myndir á Amtsbókasafninu fyrir áramótin. Þeir sem taka mynd fyrir áramót skila ekki fyrr en 3. janúar. Samt sem áður kostar myndin aðeins 350 krónur sem fyrr. Þá eru tilboð, bæði í almennu deildinni (rómantískar og hugljúfar myndir) og í barnadeildinni (hundar og kettir). Þar kostar hver mynd aðeins 100 krónur.

Þá eru enn þrettán myndir eftir í leiðinlegu myndunum, myndum sem aldrei hafa leigst út af safninu. Þetta eru tólf myndir í Shakespeare safninu og Gracie Fields collection diskarnir. Þeir eru reyndar sjö í einni öskju og eru safn stórmynda þessara geðþekku leikkonu. Allir þessir diskar lánast frítt.

Amtsbókasafnið er opið í dag, 29. desember og á morgun 30. desember frá 10-19. Lokað er á gamlársdag, nýársdag og sunnudaginn 2. janúar. Safnið opnar aftur 3. janúar klukkan 10.
Leiðinlegar myndir

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan