Eyrún Ósk Jónsdóttir heiðraði Amtsbókasafnið með nærveru sinni á mánudag. Hún las þá upp úr bók sem hún skrifaði ásamt Helga Sverrissyni, L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra. Bókin er mjög spennandi en lesa má meira um hana hérna.
Eyrún las tvo kafla úr bókinni og sýndi svo einnig í fyrsta skipti sýnishorn úr væntanlegri kvikmynd sem ber sama nafn og bókin. Hún verður frumsýnd þann 3. febrúar í Sambíóunum.
Lesa má meira um myndina hér, á heimasíðu hennar en bæði Laddi og Edda Björgvinsdóttir leika í myndinni. Þau þekkjast vel eftir að hafa slegið í gegn saman í Stella í Orlofi eins og alþjóð veit.
Amtsbókasafnið þakkar Eyrúnu kærlega fyrir komuna!