Heimilisfriður - Heimsfriður

16 dagar
16 dagar

Málþing um heimilisofbeldi á vegum Jafnréttisstofu verður á Amtsbókasafninu, fimmtudaginn 29. nóvember kl. 17:00.

Þann 25. nóvember verður  16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 21. sinn út um allan heim.  Átakið beinist að því  að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa brotaþolum, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þeirra. 

Yfirskrift átaksins á Íslandi er Heimilisfriður-Heimsfriður og áhersla lögð á að vera vakandi fyrir þeirri vá sem fylgir heimilisofbeldi sem er mjög falið vandamál í okkar samfélagi. Borgarar eru hvattir til að virða sjálfsögð réttindi allra til öryggis og vellíðunar á þeim griðastað sem heimilið á að vera og viðurkenna að heimilisofbeldi er aldrei einkamál.

Dagskrárliðir í 16 daga átakinu á Akureyri:

Þriðjudagur 27. nóvember
Kvikmyndasýning í Sambíói kl. 18:00. Sýnd verður bíómynd um afleiðingar ofbeldis. Aðgangur ókeypis.

Fimmtudagur 29. nóvember
Málþing um heimilisofbeldi á Amtsbókasafninu kl. 17:00.

Frummælendur Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins,Eyþór Þorbergsson fulltrúi Sýslumannsembættisins á Akureyri, dr.Rachael Lorna Johnstone frá Háskólanum á Akureyri og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar.

Fundarstjórn Tryggvi Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi

Fimmtudagur 6. desember
Ljósaganga frá Akureyrarkirkju kl. 16:30 Samstaða á Ráðhústorgi gegn kynbundnu ofbeldi og ljóðalestur Svanfríðar Larsen.

Laugardagur 8. desember
Mannréttindadagur í versluninni Flóru kl. 13:00-15:00.  Amnesty-bréfamaraþon og upplestur  Jokku Vulkan.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan