Bókapressan

Svo má bók lyfta að vit sé í :-)
Svo má bók lyfta að vit sé í :-)

Flestir þrá að vera í fínu formi og við góða heilsu og margir strengja heilsutengd áramótaheit.

Allir fara vel af stað en sumir eiga erfitt með að finna líkamsrækt sem hentar. Ef við höfum ekki gaman af ræktinni er áhuginn fljótur að hverfa og við hættum að nenna.

Líkams- og heilsurækt getur verið af ýmsum toga og um að gera að finna það sem er skemmtilegt.  Við eigum bækur um íþróttir og heilsurækt í tonnatali og fannst við hæfi að vekja athygli á þeim núna í byrjun árs.

Við lærum kannski ekki líkamsrækt af bókum en það getur verið góður stuðningur í góðum leiðbeiningum! Kíktu við og fáðu bók um heilsurækt sem þér finnst spennandi - Og svo má auðvitað grípa í bókapressuna :-)

Bókapressan

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan